Flokkun úrgangs
Mikilvægt er að fyrirtæki og einstaklingar flokki rétt þann úrgang sem þeir koma með til eyðingar eða endurvinnslu á Suðurnesjum. Fyrirtækjum er beint með allan sinn úrgang í móttökustöð Kölku að Berghólabraut 7 í Helguvík, en einstaklingar með almennan úrgang sem fellur til á heimilum geta komið hann gjaldfrítt á gámastöðvarnar í Kölku, Grindavík og Vogum.
Fyrirtæki og stofnanir borga samkvæmt verðskrá eða kílóagjaldi. Því er mikilvægt að rekstraraðilar flokki úrgang sinn á réttan hátt því mikil verðmunur er á úrgangsflokkum. Ef úrgangur kemur illa flokkaður og misleitur verður farmurinn felldur í dýrasta flokk því starfsmenn Kölku þurfa að flokka hann í viðeigandi flokka á gólfi móttökustöðvarinnar.
Mikilvægt er að einstaklingar komi með úrganginn vel flokkaðan á gámasvæðin því forsenda endurvinnslu er góð flokkun (forflokkun) og á hún að fara fram áður en komið er á endurvinnslustöð. Styttir það dvöl á svæðinu, auðveldar losun og hindrar biðraðamyndun. Þegar komið er á svæðið með vel forflokkaðan úrgang skal farið með hvern flokk í sinn gám en þeir eru allir vel merktir. Það verður að athuga vel að það séu engir aðskotahlutir með úrgangnum sem verið er að safna; það eyðileggur hráefnið og veldur öðrum skemmdum.
Aðskotahlutur er eitthvað sem á ekki heima í tilteknum gám eða umhverfi. Plast í pappírsgámi veldur verðfalli á erlendum markaði, bílfjöður í brennanlegum úrgangi veldur stíflu í brennsluofninum o.s.frv. Því er mikilvægt að flokka vel og flokka rétt!
Ef eitthvað er óljóst er hægt að hringja í síma 421-8010 til að fá nánari upplýsinga um flokkun úrgangs.