Djúpgámalausnir
Hér má sjá samþykktir um Djúpgámalausnir í Reykjanesbæ
Svokallaðar djúpgámalausnir hafa verið að ryðja sér til rúms á síðustu árum. Þeir þykja hentug lausn, sérstaklega þar sem pláss er af skornum skammti, og einstaklega snyrtilegir á að líta. Þessa lausn má finna víðsvegar um Evrópu auk þess sem þeir hafa verið settir upp í nýjum hverfum á höfuðborgarsvæðinu.
Djúpgámar eru, eins og nafnið gefur til kynna, gámar sem staðsettir eru að mestu undir yfirborði jarðar og ofanjarðar sést aðeins efsti hlutinn. Gámarnir geta verið mismunandi að stærð undir yfirborðinu og eins er hægt að fá þá tvískipta, allt eftir því hvað hentar hverju sinni. Losun gámanna er auðveldari í samanburði við hefðbundnar tunnur en ekki er þörf á að draga tunnur sem getur verið erfitt t.d. í miklum snjóþunga. Mikill kostur er að úrgangurinn er allur neðanjarðar, og þar af leiðandi kaldur, þannig eru minni líkur á hinum ýmsu sníkjudýrum, eins og t.d. flugum. Einnig er auðvelt að aðgangsstýra gámunum þannig að eingöngu íbúar hafi að þeim