Dreifing á nýjum tunnum á Suðurnesjum
Dreifing á nýjum tunnum mun hefjast á næstu dögum á Suðurnesjum. Björgunarsveitirnar á svæðinu munu sjá um dreifingu fyrir hönd Kölku og biðjum við íbúa að taka vel á móti þeim og koma tunnunum vel fyrir við sín heimili. Hér að neðan má sjá dreifingaráætlun fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig.
Allar tunnur verða nú merktar þeim fjórum flokkum sem verður safnað héðan í frá. Við sérbýli verður græna tunnan fyrir plastumbúðir og sú gráa fyrir pappír / pappa og munu merkingar á gömlu tunnurnar koma samhliða nýju tunnunum. Íbúar þurfa þó að hafa í huga að þar sem enn verður almennur úrgangur í gráu tunnunni verður pappír/ pappa og plastumbúðum áfram safnað í grænu tunnuna þangað til næsta tæming hefur átt sér stað. Við hvetjum íbúa til þess að fylgjast með þegar gráa tunnan hefur verið tæmd og þrífa hana áður en hún verður nýtt fyrir pappa / pappír svo endurvinnsluefnið verði hreint og nothæft.
Samhliða nýjum tunnum verður körfum og bréfpokum einnig dreift til íbúa fyrir
lífrænan eldhúsúrgang og er karfan sérstaklega ætluð inn í eldhús og hönnuð
þannig að vel lofti um innihaldið.
Í fjölbýlishúsum verða körfur og pokar sett í stigaganga og eru íbúar hvattir til þess
að sækja sér eina körfu og eitt pokabúnt.
Dreifingaráætlun (athugið að dagsetningar eru til viðmiðunar og gætu breyst þegar dreifing hefst)
Grindavík | Áætlað er að dreifing hefjist 25.maí og verði lokið 8.júní
Suðurnesjabær – Sandgerði | Áætlað er að dreifing hefjist 26.maí og verði lokið 9.júní
Suðurnesjabær – Garður | Áætlað er að dreifing hefjist 27.maí og verði lokið 10.júní
Vogar | Áætlað er að dreifing hefjist 30.maí og verði lokið
Reykjanesbær | Áætlað er að dreifing hefjist í byrjun júní. Nánari tímaáætlun eftir hverfum verður gefin út þegar nær dregur.