Í dag mánudaginn 10.júlí mun hefjast dreifing á á nýjum tunnum í Fjólubláa hverfinu-Ytri Njarðvík
Samhliða nýjum tunnum verður körfum og bréfpokum einnig dreift til íbúa fyrir lífrænan eldhúsúrgang og er karfan sérstaklega ætluð inn í eldhús og hönnuð þannig að vel lofti um innihaldið.
í fjölbýlishúsum verða körfur og pokar sett í stigaganga og eru íbúar hvattir til að sækja sér eins körfu og eitt búnt
Merkingar á gömlu tunnurnar koma samhliða nýju tunnunum.íbúar þurfa þó að hafa í huga að þar sem enn verður almennur úrgangur í gráu tunnunni verður pappír/pappa og plastumbúðum áfram safnað í grænu tunnuna þangað til næsta tæming hefur átt sér stað .
Við hvetjum íbúa til þess að fylgjast með þegar gráa tunnan hefur verið tæmd og og þrífa hana áður en hún verður nýtt fyrir pappa/pappír svo endurvinnsliefnið verði hreint og nothæft