Kalka s.f er eitt af framúrskarandi fyrirtækjum ársins 2024 samkvæmt úttekt Creditinfo. Kalka komst fyrst inn á þennan lista árið 2020 og hefur verið þar síðan. Framúrskarandi fyrirtæki þurfa að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla allra hag, að því er fram kemur hjá Creditinfo. Til að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði en listann í heild má finna á vef Creditinfo.
Við í Kölku erum auðvitað ánægð með okkar sæti á þessum lista, núna fimmta árið í röð og sammála því að margt gengur ljómandi vel. Þessi ár hafa verið tími mikilla og stundum erfiðra breytinga. Hvert breytingaverkefnið hefur rekið annað og nú má segja breytingar séu hið venjulega ástand í Kölku.
Svona velgengni stendur og fellur með starfsfólkinu en í Kölku starfar samstilltur hópur í góðri samvinnu við viðskiptavini sína og eigendur. Það er okkar lykill að því að geta tekist á við stöðugar breytingar í sátt við samfélagið hér á Suðurnesjum.