Eins og íbúar Suðurnesja og reyndar landsins alls hafa orðir varir við hefur söfnun úrgangs frá heimilum raskast mikið frá því um miðjan desember.Í skýringum verktaka er vísað bæði til veðurs og færðar annars vegar og veikindaforfalla hins vegar.Þá er okkur í Kölku sagt að tafir á losun grenndargáma séu vegna bilana losunarbíls.
Sérlega hefur verið bagalegt hversu illa hefur gengið að fá upplýsingar um stöðuna og næstu losanir.Starfsfólk Kölku hefur því ekki haft góðar upplýsingar fyrir þá íbúa sem hafa viljað forvitnast um hvenær losunar megi vænta í þeirra hverfum.
Skv.upplýsingum frá verktakanum er ekki gert ráð fyrir að þetta verði komið í eðlilegt horf fyrr en um miðja næstu viku.Í lok þessarar viku má reikna með að ástandið verði orðið viðunandi nema í Ytri Njarðvík og á Ásbrú.Við reiknum með að unnið verði á losun á laugardaginn (14.jan)
Gert ráð fyrir að Grenndarstöðvar á Suðurnesjum verði einnig losaðar um helgina
Einnig viljum við vekja athygli á að Móttökustöðvar Kölku í Helguvík,Grindavík og Vogum eru opnar samkvæmt auglýstum opnunartíma og þangað er hægt að koma með umframheimilissorp og endurvinnsluefni endurgjaldslaust