Fimmtudaginn 16 febrúar síðast liðunn hittust fulltrúar sveitarfélaganna á Suðurnesjum í Kölku til þess að fara yfir þær breytingar sem fram undan eru í úrgangsmálum.
Nýju löggjöfinni fylgja töluverðar breytingar í bakvinnslu og því mikilvægt að samræma og reyna að sjá fyrir þær áskoranir sem fram undan eru til þess að þessi breyting gangi sem best fyrir sig fyrir íbúa á Suðurnesjum.
Mikil vinna hefur verið lögð í að greina stöðuna eins og hún er í hverju sveitarfélagi fyrir sig og í dag var farið yfir hvert hlutverk sveitarfélaganna er í þessum breytingum og hvert hlutverk Kölku er.
Ljóst er að einhverjir íbúar munu þurfa að ráðast í breytingar á núverandi úrgangslausnum við sínar fasteignir og hvetjum við íbúa til þess að skoða það tímanlega.
Við fögnum þessari góðu samvinnu sem hefur átt sér stað með sveitarfélögunum og hlökkum til samstarfsins á komandi mánuðum þar sem árangur nýs flokkunarkerfis mun að miklu leyti byggja á samræmdum flokkunarleiðbeiningum og samvinnu okkar allra.