Fundargerð – 517. stjórnarfundur Kölku
Fundur í stjórn Kölku sf var haldinn þriðjudaginn 15. september 2020, kl. 16:30. Fundurinn var haldinn í fundarsal Kölku að Berghólabraut 7.
Mættir: Önundur Jónasson sem stýrði fundi, Ásrún Kristinsdóttir, Inga Rut Hlöðversdóttir, Laufey Erlendsdóttir, Páll Orri Pálsson sem ritaði fundargerð og Steinþór Þórðarson.
Dagskrá:
- Skýrsla framkvæmdastjóra – stutt yfirlit, ágúst og sept.
- Ráðstöfun húseignar Kölku á Ásbrú (gamla stöðin).
- Áætlun 2021 – meginlínur og áherslur.
- Stefnumál 2021 – tillögur stjórnarformanns.
- Önnur mál.
- Skýrsla framkvæmdastjóra - framkvæmdastjóri fór yfir sumarið og kynnti nokkur mál sem hafa verið ofarlega á döfinni frá síðasta stjórnarfundi.
- Öryggismál: Hjálmaskylda starfsmanna á móttökuplani og brennslustöð var sett á í lok ágúst. Sömuleiðis er starfsmönnum skylt að nota hlífðargleraugu.
- Skipulagt viðhald hófst þegar brennsla var stöðvuð síðastliðinn sunnudag. Nægt pláss er í gryfju til að taka á móti efni þar til stöðin verður gangsett aftur í næstu viku.
- Samið hefur verið við Tæknivit um samstarf við uppsetningu og innleiðingu nýs vigtarkerfis fyrir Kölku.
- Framkvæmdastjóra var falið að skoða möguleika á breytingum á gámaplani í Helguvík og hvað slíkar breytingar kynnu að kosta.
- Ráðstöfun húseignar Kölku á Ásbrú (gamla stöðin). Kölku hefur borist tilboð í gömlu brennslustöðina við Hafnaveg og er framkvæmdastjóra og Páli Orra stjórnarmanni falið að yfirfara tilboðið og ganga til samninga við bjóðanda.
- Áætlun 2021 – stjórnarformanni og framkvæmdastjóra falið að ljúka við gerð áætlunar fyrir og verður hún lögð fyrir stjórn til yfirferðar á næsta fundi.
- Stefnumál og markmið 2021 - stjórnarformaður fór yfir núgildandi umhverfisstefnu Kölku og lagði til markmið sem stefnumál taka mið af fyrir árið 2021. Umræða um markmiðin fóru fram í stjórninni og munu aftur vera tekin upp á næsta stjórnarfundi.
- Önnur mál – engin önnur mál.
Næsti fundur er áætlaður 6. október kl. 16:30.
Fleira ekki gert og fundi slitið kl. 18:00
Önundur Jónasson
Ásrún Kristinsdóttir
Laufey Erlendsdóttir
Páll Orri Pálsson
Inga Rut Hlöðversdóttir
Steinþór Þórðarson