Stjórnarfundir
Fundargerð – 531. stjórnarfundur Kölku
fundargerd-531.-stjornarfundur-kolku.docx
Fundur í stjórn Kölku sorpeyðingarstöðvar sf. var haldinn þriðjudaginn 14. desember 2021, kl. 16:30. Fundurinn var haldinn í Kölku og með fjarfundarsniði.
Mættir: Önundur Jónasson sem stýrði fundi og ritaði fundargerð, Ásrún Kristinsdóttir, Inga Rut Hlöðversdóttir, Laufey Erlendsdóttir og Steinþór Þórðarson.
Dagskrá:
- Skýrsla framkvæmdastjóra.
- Sérstakar gjaldskrárbreytingar 2022.
- Verklok stýrihóps um forverkefni nýrrar sorpbrennslu.
- Undirbúningur gildistöku nýrra laga um meðhöndlun úrgangs 1. janúar 2023.
- Önnur mál.
- Skýrsla framkvæmdastjóra:
- Öryggismál: Nokkur atvik hafa verið skráð frá síðasta fundi en ekki alvarleg. Mjög jákvætt er að sjá skráningum mála fjölga í atvikaskráningum en það gefur kost á fyrirbyggjandi aðgerðum.
- Afköst brennslu í nóvember voru um 1551 kg. á klst. að jafnaði. Brennsla spilliefna var að meðaltali 3,1 tonn á sólarhring. Brennt magn er þegar orðið meira á árinu en það var allt árið í fyrra. Stefnir í 12.500 tonn á árinu sem verður þá 10 ára met.
- Framkvæmdastjóri kynnti að Java kóði sem veldur miklum titringi í tækniheimum þessa dagana sé ekki á vefþjóni Kölku og á heldur ekki að vera á þjónum samstafsaðila, skv. upplýsingum frá þeim.
- Sérstakar gjaldskrárbreytingar.
Framkvæmdastjóri kynnti yfirstandandi verkefni við endurskoðun á nokkrum liðum í gjaldskrá fyrir 2022. Gjaldskráin er að öðru leyti frágengin. Legið hefur fyrir að gjaldskrá urðunar hjá Sorpu hefur hækkað mikið, annað árið í röð. Starfsmenn Kölku hafa unnið að því í desember að rýna hlut urðunar í efnisstraumum frá fyrirtækinu. Sértækar breytingar eru lagðar til í því skyni að hindra að tap verði á þeirri þjónustu sem Kalka veitir við að miðla efni til urðunar.
Gjaldskrárhækkun frestað til samþykktar næsta fundar. Endurskoðun gjaldskrár með tilliti til umhverfismarkmiða Kölku og áherslu á enn frekari flokkun.
- Verklok stýrihóps um forverkefni nýrrar sorpbrennslu.
Á morgun, 15. desember, skilar stýrihópurinn skýrslu sem þegar hefur verið kynnt í áföngum á opnum fundum hópsins. Framkvæmdastjóri stiklaði á stóru um niðurstöðurnar til almennrar umræðu í stjórn og mun fylgja þróun verkefnisins eftir.
- Undirbúningur gildistöku nýrra laga um meðhöndlun úrgangs 1. janúar 2023.
Framkvæmdastjóri fór yfir, til kynningar, yfirstandandi vinnu á ýmsum vettvangi vegna mikilla breytinga sem framundan eru á úrgangsmeðhöndlun á Íslandi. - Önnur mál:
Ásrún bar upp erindi sem barst til hennar frá íbúa.
Ósk um að flokkunarhlutfall frá heimilum sé aðgengilegt á heimasíðu Kölku.
Málið hefur verið í vinnslu innan stjórnar s.l. mánuði ásamt ýmsum verkefnum sem ætlað er að auka upplýsingaflæði til íbúa. Framkvæmdastjóra falið að koma verkefninu í vinnslu þar sem flokkunarhlutföll eru birt eftir íbúasvæðum.
Fleira var ekki tekið fyrir á fundinum og honum slitið kl. 18:30.
Næsti fundur er áætlaður þriðjudaginn 11. janúar 2022.
Fundargerð samþykkt með undirskriftum.